Hvað er það fallegasta sem þú átt? „Ljósmyndir af mínu fallega fólki.“ Hvað keyptir þú síðast? „Prjónaða yfirhöfn með pelskraga og dúnvatteruðu baki frá Moncler. Fullkomin flík fyrir íslenskt haust.“ Hvert er þitt…
Helga uppgötvaði Prada þegar hún var ungur námsmaður í Lundúnum og hefur allar götur síðan haft dálæti á hönnuninni.
Helga uppgötvaði Prada þegar hún var ungur námsmaður í Lundúnum og hefur allar götur síðan haft dálæti á hönnuninni. — Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir

Hvað er það fallegasta sem þú átt?

„Ljósmyndir af mínu fallega fólki.“

Hvað keyptir þú síðast?

„Prjónaða yfirhöfn með pelskraga og dúnvatteruðu baki frá Moncler. Fullkomin flík fyrir íslenskt haust.“

Hvert er þitt uppáhaldshúsgagn?

„Sófaborð sett saman úr steypu, marmara og gleri sem ég og Kristín Eva Ólafsdóttir hönnuðum fyrir marmara-samsýningu á Listasafni Íslands á HönnunarMars 2022.“

Hvernig efni finnst þér fallegust?

„Kasmír er fallegt bæði í fatnaði og heimilisvöru.“

Hvernig arkitektúr finnst þér fallegastur?

...