Búdapest Anton Sveinn og Snæfríður Sól fara á HM í 25 m laug.
Búdapest Anton Sveinn og Snæfríður Sól fara á HM í 25 m laug. — Ljósmynd/SSÍ

Ólympíufararnir Anton Sveinn McKee og Snæfríður Sól Jórunnardóttir verða á meðal keppenda á heimsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug í Búdapest dagana 10.-15. desember. Stjórn Sundsambands Íslands ákvað að velja þau strax en vonast að öðru leyti til þess að senda fjóra til sex keppendur á mótið. Endanlegt val liggur fyrir að loknu Íslandsmeistaramótinu sem fer fram á Ásvöllum í Hafnarfirði dagana 8. til 10. nóvember.