Hörður Agnarsson fæddist 14. ágúst 1969. Hann lést 9. september 2024.

Útför hans fór fram 19. september 2024.

Það er ákaflega sorglegt að upplifa það að missa Hörð svona sviplega, mann í fullu fjöri og ekki eldri en þetta. Aðdragandinn var mjög stuttur, mér gafst varla tími til að vona að allt færi vel, hvað þá meira. Og nú klóra ég mér í kollinum yfir því hvernig þetta gat farið svona. Ég hélt að læknavísindin ættu svar. Svo reyndist ekki vera. Hörður frændi minn var gull af manni. Varla hægt að hugsa sér betri dreng. Hann var með eindæmum bóngóður og alltaf tilbúinn að veita liðsinni. Hörður var rafvirki að mennt. Undanfarin ár vann hann við ljósleiðaravæðingu heimila landsins. Ef eitthvað bjátaði á í rafmagns- eða netmálum hjá mér hringdi ég í Hörð. Hann kunni á þessari tækni einstök skil. Nú hef ég einungis góðar minningar til að

...