Fréttamaðurinn Will Reeve, sonur Christopher Reeve, á frumsýningunni,
Fréttamaðurinn Will Reeve, sonur Christopher Reeve, á frumsýningunni, — AFP/Jamie McCarthy

Heimildarmynd um leikarann Christopher Reeve var nýlega frumsýnd í Bandaríkjunum. Reeve lék Superman í nokkrum myndum við gríðarlegar vinsældir. Hann lamaðist fyrir neðan háls eftir að hafa fallið af hestbaki og vakti aðdáun umheimsins með því að berjast eftir það fyrir umbótum í þágu fatlaðra. Hann lést 52 ára gamall árið 2004.

Heimildarmyndin hefur fengið sérlega góða dóma. Hún er sögð svo áhrifamikil að erfitt sé að horfa á hana án þess að tárast.