Ólafur Ólafsson fæddist 17. október 1939. Hann lést 26. ágúst 2024.

Útför fór fram 6. september 2024.

Vinur okkar Ólafur Ólafsson er látinn. Við kölluðum hann alltaf Olla enda gekk hann undir því nafni alla tíð. Hann kom til okkar nokkrum vikum fyrir andlátið og sagði okkur þær fréttir að hann ætti ekki langt eftir, því læknar teldu sig ekki hafa nein frekari úrræði undir höndum til að stöðva framgang sjúkdómsins. Við hjónin gerðum okkur ekki fyllilega grein fyrir því á þessari stundu að Olli var í raun og veru að kveðja, en við héldum að hann yrði lengur meðal okkar, svo varð því miður ekki.

Fjölskylda okkar getur aldrei fullþakkað Olla þau fórnfúsu störf sem hann innti af hendi fyrir Öspina, íþróttafélag fatlaðra og þroskahamlaðra, en þar var hann stjórnarformaður hátt í fjóra áratugi. Kristín

...