Málverkasýningin Louisa verður opnuð í dag, laugardaginn 21. september, í Listheimum í Súðarvogi 48 í Reykjavík. Er það sölusýning á málverkum Louisu Matthíasdóttur og verður dóttir hennar, Temma Bell, viðstödd opnunina

Málverkasýningin Louisa verður opnuð í dag, laugardaginn 21. september, í Listheimum í Súðarvogi 48 í Reykjavík. Er það sölusýning á málverkum Louisu Matthíasdóttur og verður dóttir hennar, Temma Bell, viðstödd opnunina. Á sýningunni má sjá verk úr dánarbúi Louisu Matthíasdóttur frá ýmsum tímabilum á ferli hennar og meðal viðfangsefna hennar eru íslenskt landslag, svipmyndir úr borg og sveit og dýramyndir.