Brúnó Madrígal er gæddur yfirnáttúrulegri gáfu, líkt og aðrir meðlimir fjölskyldunnar. Brúnó fær vitranir og ­getur séð inn í framtíðina. En hann er líka ­gæddur annarri yfirnáttúrulegri gáfu sem hann hefur ekki sjálfstraust til þess að láta blómstra: Hann er frábær leikari og elskar leiklist. Fjölskyldan tekur því höndum saman til að fá Brúnó til að ­horfast í augu við leiklistargáfu sína.