Víkingar freista þess að jafna met KR frá árunum 1960 til 1964 þegar þeir mæta KA í úrslitaleik bikarkeppni karla í fótbolta á Laugardalsvellinum í dag klukkan 16. KR vann bikarkeppnina fimm fyrstu árin en Víkingar hafa unnið keppnina í fjögur…
Bikarinn
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Víkingar freista þess að jafna met KR frá árunum 1960 til 1964 þegar þeir mæta KA í úrslitaleik bikarkeppni karla í fótbolta á Laugardalsvellinum í dag klukkan 16.
KR vann bikarkeppnina fimm fyrstu árin en Víkingar hafa unnið keppnina í fjögur síðustu skipti sem hún hefur verið haldin, 2019, 2021, 2022 og 2023.
Keppninni var aflýst haustið 2020 þegar komið var að undanúrslitum, vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Bikarmeistarar verða því krýndir í dag í 64. skipti á 65 árum.
Fimmti úrslitaleikur KA
KA leikur sinn fimmta úrslitaleik og freistar þess að verða bikarmeistari í fyrsta skipti. KA-menn hafa tapað
...