Stella Jónsdóttir (síðar Stella Jónsdóttir Miller) fæddist í Reykjavík 21. september 2024 og lést 16. september 1995 á heimili sínu í Hafnarfirði. Hún ólst upp að Þórsgötu 12 og á Lindargötunni í Miðbæ Reykjavíkur.

Foreldrar hennar voru Jón Kristján Guðmundur Kristjánsson kyndari, f. á Búðum á Snæfellsnesi 6. júní 1893, fórst með e.s. Goðafossi 10. nóvember 1944, og Sólveig Jónsdóttir verkakona frá Viðvíkursveit í Skagafirði, f. 1898, d. 1981. Systkini Stellu: Sigrún, f. 1925, d. 2021, Kristján Hans, f. 1927, d. 2007, og Úlla, f. 1928, d. 2006.

Stella lauk verslunarskólaprófi árið 1945 og hélt fljótt að því námi loknu til New York í Bandaríkjunum til að hefja snyrtifræðinám. Hún bjó um tíma í Alaska og Hawaii en settist síðar að í Seattle í Washington ríki í Bandaríkjunum og bjó þar til æviloka. Hún starfaði við iðngrein sína á Olympic-hótelinu í

...