Bjarni Valdimar Tryggvason fæddist 21. september 1945 í Reykjavík. Foreldrar voru Svavar Tryggvason, f. 1916, d. 2005, og Sveinbjörg Haraldsdóttir, f. 1916, d. 1980. Hann gekk í Austurbæjarskóla en svo fluttist fjölskyldan til Vancouver í Kanada þegar hann var átta ára.

Bjarni lauk BS-prófi í eðlisverkfræði frá Háskólanum í Bresku Kólumbíu árið 1972. Í framhaldsnámi lagði hann stund á hagnýta stærðfræði og straumfræði. Bjarni kenndi m.a. við háskóla í Kanada, Japan og Ástralíu og var gerður að heiðursdoktor við Háskólann í Vestur-Ontario 1998 og verkfræðideild Háskóla Íslands árið 2000.

Bjarni er eini Íslendingurinn sem hefur farið út í geim. Það gerðist árið 1997 er hann var ásamt fimm öðrum um borð í geimferjunni Discovery, sem á 12 dögum í ágústmánuði 1997 fór 180 sinnum í kringum

...