Viktor Freyr Sigurðsson, sem hefur varið mark Leiknis úr Reykjavík undanfarin ár, hefur samið við knattspyrnudeild Fram til tveggja ára, frá og með áramótum. Viktor er 24 ára gamall og hefur verið aðalmarkvörður Leiknis undanfarin þrjú ár, þar af eitt ár í Bestu deildinni

Viktor Freyr Sigurðsson, sem hefur varið mark Leiknis úr Reykjavík undanfarin ár, hefur samið við knattspyrnudeild Fram til tveggja ára, frá og með áramótum. Viktor er 24 ára gamall og hefur verið aðalmarkvörður Leiknis undanfarin þrjú ár, þar af eitt ár í Bestu deildinni.

Oddur Gretarsson skoraði ellefu mörk í gærkvöld í fyrsta leik sínum með handknattleiksliði Þórs frá Akureyri í ellefu ár en hann sneri þangað heim úr atvinnumennsku í sumar. Mörkin færðu Þórsurunum þó ekki stig því þeir töpuðu, 32:31, fyrir Víkingum í spennandi fyrsta leik 1. deildar karla í Safamýri þar sem Sigurður Páll Matthíasson var markahæstur Víkinga með átta mörk.

Íslandsmeistarar Skautafélags Reykjavíkur töpuðu 5:0 fyrir Energija, meistaraliði Litháens, í gær í fyrsta leik sínum i

...