Erlendur Friðriksson fæddist 17. apríl 1953. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi laugardaginn 7. september 2024.

Foreldrar hans voru Friðrik Sigurðsson vélstjóri, f. 25.11. 1920, d. 10.8. 1974, og Jóhanna Rósa Guðmundsdóttir, húsfreyja og verkakona, f. 24.1. 1925, d. 2.1. 2000.

Erlendur var fimmti í röð sjö systkina, hin eru: Guðmundur, f. 25.11. 1947; Sigurður, f. 19.4. 1948; Sæmundur, f. 24.10. 1949, d. 9.10. 2022; Einar, f. 13.3. 1951, d. 8.10. 2008; Guðlaug, f. 14.1. 1958; Hafdís, f. 29.8. 1962.

Börn Erlends eru: 1) Dagný Hulda, f. 11.3. 1977, gift Skúla Th. Theodórssyni, og eiga þau börnin Arnar, Ægi, Unni og Ragnheiði. 2) Eiður Fannar, f. 3.1. 1981, kvæntur Maríu Vestergaard Guðmundsdóttur og eiga þau synina Guðmund Gunnar, Erlend Fannar og Kristján Jens. Eið og Dagnýju

...