Anfield Nokkrir fyrrverandi leikmenn KR og Liverpool samankomnir.
Anfield Nokkrir fyrrverandi leikmenn KR og Liverpool samankomnir.

Sjö leikmenn úr knattspyrnuliði KR sem mætti Liverpool á Laugardalsvelli og Anfield í Evrópukeppni meistaraliða árið 1964 voru staddir á Anfield sl. laugardag þegar Liverpool og Bournemouth mættust í ensku úrvalsdeildinni.

Leikirnir árið 1964 eru sögulegir fyrir bæði félög en þetta var frumraun beggja í Evrópukeppni. Leikjanna var minnst í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá því liðin mættust.

KR-ingarnir sjö eru á meðfylgjandi mynd á Anfield fyrir leikinn, ásamt fjórum leikmönnum Liverpool sem tóku þátt í leikjunum. Voru þeir heiðraðir í tilefni tímamótanna.

Leikmenn KR eru Þórður Jónsson, Sveinn Jónsson, Heimir Guðjónsson, Ársæll Kjartansson, Gísli Þorkelsson, Þorgeir Guðmundsson og Gunnar Felixson.

Liverpool vann KR 5:0

...