Ólöf Gestsdóttir (Lóa) fæddist 24. júní 1937. Hún lést 2. september 2024. Útför fór fram 17. september 2024.

Elsku amma mín og besta vinkona. Hvernig á ég að lifa án þess að geta heyrt í þér símleiðis og kíkt til þín í heimsókn? Það var ekkert sem mér hlýnaði meira við en að heyra þig segja í símann „bið að heilsa snúllunum mínum“, ég heyri röddina þína þegar ég skrifa þetta niður. Við gátum talað tímunum saman um allt og ekkert, blaðrað um eitthvað sem skipti engu máli en líka það sem okkur lá á hjarta. Þér var alltaf svo annt um hvað var að gerast í lífi mínu og hafðir áhuga á öllu því sem ég hafði að segja. Það er svo skrítið að hafa þig ekki lengur hér með okkur. Ég þekki ekkert annað en að eiga þig að og er ævinlega þakklát fyrir að hafa átt þig í 32 ár sem ömmu mína. Ég er líka svo glöð hvað þið Hrafntinna elsta dóttir mín voruð nánar og miklar vinkonur, hún náði að

...