Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Anton Sveinn McKee, sundmaður og ólympíufari, var kjörinn formaður Freyfaxa, ungliðahreyfingar Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi, á stofnfundi hreyfingarinnar á föstudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðflokknum.

Anton segir það vera heiður að fá að leiða stjórnina. Ný stjórn sé metnaðarfull og kalli eftir breytingum í íslenskum stjórnmálum.

„Það er heiður að fá að leiða þennan framsækna og metnaðarfulla hóp. Við erum samansafn af ungufólki úr Kraganum sem kallar á breytingar í íslenskum stjórnmálum. Aðstæður í samfélaginu eru mörgu ungu fólki erfiðar og nú ríður á að auka ungu fólki bjartsýni á framtíðina. Grunnstoðir samfélagsins eru laskaðar og við sættum okkur ekki við það ástand. Það er kominn tími á skynsemishyggju í efnahags-, húsnæðis-, og menntamálum. Miðflokkurinn mun leiða á grundvelli þeirrar stefnu,“

...