Sigríður Elsa Oddsdóttir fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1962. Hún lést á heimili sínu 8. september 2024.

Foreldrar Sigríðar Elsu voru Ásta Salvör Þórðardóttir húsmóðir, f. 4.1. 1941 í Reykjavík, d. 7.3. 2022, og Oddur Ragnarsson bifvélavirki, f. 14.9. 1937, d. 10.8. 2001. Bróðir Sigríðar Elsu er Ragnar rekstrarráðgjafi, f. 3. ágúst 1959, kvæntur Hönnu P. Gunnarsdóttur. Þeirra börn eru Haukur og Signý Bára. Þau eru öll búsett í Noregi.

Sigríður Elsa giftist Guðmundi Snorrasyni endurskoðanda 16. apríl 1988, f. 7.2. 1958. Börn Sigríðar Elsu og Guðmundar eru: 1) Berglind lífefnafræðingur, f. 24. september 1985, búsett í San Francisco. Hennar börn með Khash Chamlou, f. 30.6. 1973, d. 16.9. 2022, eru Tristan Logi, Aurora Björk og Eldar River. 2) Snorri Guðmundsson, f. 13.11. 1986, kvæntur Sólveigu Maríu Erlendsdóttur viðskiptafræðingi, f. 9.7.1987, búsett

...