Viljinn ræðir skrif rithöfundarins Andra Snæs Magnasonar á samfélagsmiðlum, þar sem hann bölsótast yfir einróma stuðningi þjóðarinnar við aukna orkuöflun í nýrri Gallup-könnun fyrir SA.
Gremjan sé skiljanleg því hann hafi haft mikið „dagskrárvald í umræðunni um orkunýtingu, náttúruvernd og loftslagsmál. Með þeim afleiðingum að Ísland býr nú við orkuskort.“
Andri Snær hafi sannfært vinstrimenn „um að Íslendingar vilji ekki nýta grænar orkulindir sínar; það þurfi bara að losna við stórnotendur og láta aðra hugsa um þau störf sem tapast, að ekki sé minnst á gjaldeyristekjurnar. Könnun SA sýnir að þetta var kolrangt mat.“
Ekki virðist Andri Snær glaðari með útreikninga Viðskiptaráðs á efnahagsafleiðingum 150 loftslagsaðgerða Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-
...