Hagkerfi Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka.
Hagkerfi Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. — Morgunblaðið/María

Íslandsbanki spáir því að verðbólgan verði að meðaltali 6% í ár, 3,7% árið 2025 og 3,0% árið 2026.

Verðbólguálag hefur lækkað allnokkuð frá vaxtaákvörðuninni í ágúst þótt langtímaverðbólguvæntingar séu enn háar á flesta mælikvarða.

Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, sagði á Fjármálaþingi Íslandsbanka sem haldið var í gær að mikil seigla væri í íslensku hagkerfi um þessar mundir. Hann segir í samtali við ViðskiptaMoggann að eftir 5 ársfjórðunga af háum vöxtum sé einnig farið að draga úr útflutningsvexti og samdráttur sums staðar. Heimilin séu hins vegar að sýna talsverða seiglu í einkaneyslu.

„Við erum auk þess að sjá fyrirtækin halda dampi í fjárfestingu í býsna krefjandi vaxtaumhverfi. Vinnumarkaðurinn hefur verið sterkur og íbúðamarkaðurinn einnig miðað við

...