Sigurður Mar Stefánsson fæddist 27. október 1950. Hann lést 17. júlí 2024.

Útför hans fór fram 5. september 2024.

Elsku tengdapabbi og afi.

Komið er að kveðjustund og þú hefur fengið hvíldina. Við munum sakna þín meira en við getum enn ímyndað okkur og ljóst er að við munum eiga svo margar skemmtilegar sögur að segja af þér sem munu skemmta allri fjölskyldunni um ókomna tíð. Þú varst alltaf hrókur alls fagnaðar, sprellandi og að fíflast og þá sérstaklega á mannamótum. Við vitum að Stebbi tekur á móti þér í sumarlandinu með breiða faðminn sinn og þið feðgar skálið saman í Stellu, leysið heimsmálin og hlæið hátt og dátt eins og ykkur var lagið.

Veikindi síðustu ára tóku á þig og þína nánustu og var erfitt að horfa á eftir þér hverfa smám saman. Alltaf var

...