Guðný Björgvinsdóttir fæddist á Sólvangi í Hafnarfirði 29. júní 1953. Hún lést á heimili sínu í Hafnarfirði 9. september 2024.

Guðný var dóttir hjónanna Björgvins Sigurðar Sveinssonar, f. 17. október 1921, d. 24. júlí 2021, og Hólmfríðar Ásu Vigfúsdóttur, f. 17. október 1926, d. 8. júlí 2007.

Systkini Guðnýjar eru: Vigfús Jón, f. 19 mars 1948, Rúnar Berg, f. 23. október 1950, d. 2. október 1975, Eðvarð, f. 16. desember 1951, Ingibjörg E., f. 14. september 1955, d. 16. apríl 2022, Björgvin Hólm, f. 24. desember 1960, og Ásbjörg, f. 3. desember 1964.

Börn hennar eru: 1) Hólmfríður María, f. 11. júlí 1975, d. 1. mars 1982. 2) Berglind, f. 25. nóvember 1979. 3) Bergsveinn, f. 23. maí 1983, maki Gunnhildur Guðnýjardóttir, f. 27. mars 1984. Barnabörn Guðnýjar eru orðin sjö

...