Skotland Arnar lék sjálfur hálft tímabil í skosku úrvalsdeildinni.
Skotland Arnar lék sjálfur hálft tímabil í skosku úrvalsdeildinni. — Ljósmynd/Inpho Photography

Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings er ofarlega á listum breskra veðbanka sem næsti knattspyrnustjóri skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts. Edinborgarliðið hefur aldrei byrjað eins illa í deildinni, situr á botninum eftir sex umferðir, og stjórinn Steven Naismith var rekinn um helgina. Arnar er settur í þriðja sæti hjá veðbanka með 25 prósent líkur, á eftir Alex Neil, fyrrverandi stjóra Stoke, og Stephen Robinson, núverandi stjóra St. Mirren.