Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Stjörnunnar, hefur framlengt samning sinn við félagið til tveggja ára. Guðmundur, sem er 35 ára, er að ljúka öðru tímabili sínu með Stjörnunni en hann hefur leikið 224 leiki í efstu deild og alls 378 …

Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Stjörnunnar, hefur framlengt samning sinn við félagið til tveggja ára. Guðmundur, sem er 35 ára, er að ljúka öðru tímabili sínu með Stjörnunni en hann hefur leikið 224 leiki í efstu deild og alls 378 deildaleiki á ferlinum, heima og erlendis.

Björn Daníel Sverrisson, fyrirliði knattspyrnuliðs FH, hefur framlengt samning sinn við félagið til eins árs. Björn, sem er 34 ára, er fjórði leikjahæstur í sögu FH í efstu deild með 233 leiki og hefur leikið 338 deildaleiki á ferlinum, heima og erlendis.

Þriðji fyrirliðinn í Bestu deild karla 2025 framlengdi samning sinn í gær en Alex Freyr Hilmarsson hjá ÍBV, sem hefur tryggt sér sæti í deildinni fyrir næsta tímabil, hefur samið við Eyjamenn til næstu þriggja ára. Alex, sem er 31 árs, hefur leikið 153

...