Ekkert hefur frést af sjónvarpsverðlaunum Eddunnar sem boðað var að veitt yrðu nú á haustmánuðum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gætir nokkurrar óþreyju meðal sjónvarpsfólks sem vill fá sína uppgjörshátíð eins og kollegar þeirra í kvikmyndabransanum
Edduverðlaun Áramótaskaupið 2022 var verðlaunað í fyrravor.
Edduverðlaun Áramótaskaupið 2022 var verðlaunað í fyrravor. — Morgunblaðið/Eggert

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Ekkert hefur frést af sjónvarpsverðlaunum Eddunnar sem boðað var að veitt yrðu nú á haustmánuðum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins gætir nokkurrar óþreyju meðal sjónvarpsfólks sem vill fá sína uppgjörshátíð eins og kollegar þeirra í kvikmyndabransanum.

Í lok árs 2023 sendi stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademí­unnar frá sér tilkynningu þar sem fram kom að breytingar yrðu gerðar á Eddunni í ár. Stærstu breytingarnar voru að kvikmyndaverðlaun og sjónvarpsverðlaun yrðu frá og með 2024 afhent hvor í sínu

...