Tíu M Samantha hefur komið eins og stormsveipur inn í deildina.
Tíu M Samantha hefur komið eins og stormsveipur inn í deildina. — Morgunblaðið/Eggert

Samantha Smith, bandaríski framherjinn hjá Breiðabliki, var besti leikmaðurinn í 21. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Það ætti ekki að koma neinum á óvart þar sem Samantha var í miklum ham á sunnudaginn þegar Breiðablik vann Þór/KA 6:1 á Kópavogsvelli. Samantha skoraði þrennu á fyrstu 14 mínútum leiksins og lagði svo eitt mark upp að auki. Hún fékk hæstu einkunnina, 3 M, fyrir frammistöðu sína.

Samantha hefur hreinlega farið á kostum eftir að hún kom til Breiðabliks frá FHL um miðjan ágúst. Þá var hún búin að taka drjúgan þátt í að koma Austfjarðaliðinu upp í Bestu deildina með því að skora 15 mörk.

Tíu M í fimm leikjum

Nú hefur Samantha skorað sjö mörk í fyrstu fimm leikjum

...