Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gengið frá samningi við Bandaríkjamanninn Khalil Shabazz og mun hann leika með liðinu á komandi leiktíð. Shabazz lék síðast með Baliksehir í Tyrklandi og skoraði 17 stig og gaf sex stoðsendingar að meðaltali í leik.
Hann kemur í staðinn fyrir Julius Brown, en Brown stóð ekki undir væntingum Njarðvíkinga og var tilkynnt um brotthvarf hans frá félaginu í gær. Skömmu síðar var Shabazz kynntur til leiks hjá Njarðvík.