Skúli Pálsson fór í fuglaskoðun og lýsti því sem bar fyrir sjónir undir bragarhættinum stuðlafalli: Maríuerla, má ég tala við þig ef þú hefur tíma til. Tístið þitt ég núna skil. Með rauða bringu, beinan gogg og augu vökul hér má líta háfættan heiðarlegan jaðrakan
Pétur Blöndal
p.blondal@gmail.com
Skúli Pálsson fór í fuglaskoðun og lýsti því sem bar fyrir sjónir undir bragarhættinum stuðlafalli:
Maríuerla, má ég tala við þig
ef þú hefur tíma til.
Tístið þitt ég núna skil.
Með rauða bringu, beinan gogg og augu vökul
hér má líta háfættan
heiðarlegan jaðrakan.
Sílamáfur sat og beið á þakbrún,
hingað sveif er honum bauð
hálfuppétið pylsubrauð.
Stelkur upp á staur á öðrum fæti:
hverja flugu fær
...