Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson

„Fjarvera fyrrverandi borgarstjóra hefur vissulega verið áþreifanleg þetta kjörtímabilið og á meðan verkefnin hrannast upp
er hann á ferðalagi,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, um tíðar ferðir Dags B. Eggertssonar til útlanda, sem greint var frá í blaðinu í gær.

Það sem af er kjörtímabilinu hefur Dagur farið í 26 ferðir og dvalið erlendis í tæpa þrjá mánuði samanlagt.

Hildur segir ferðirnar hafa verið kynntar í borgarráði og á hún inni fyrirspurn, sem ekki hefur enn verið svarað, um fjölda ferða kjörinna fulltrúa á þessu kjörtímabili og kostnað vegna þeirra.

Í blaðinu í dag er rætt við oddvita í minnihluta borgarstjórnar um ferðalög Dags og eru þau gagnrýnd af þeim öllum. „Mig rak í

...