Upplýst hefur verið að Margot Robbie og Jacob Elordi muni fara með hlutverk Catherine Earnshaw og Heathcliff í kvikmyndaaðlögun Emerald Fennell á rómantísku skáldsögunni Wuthering Heights eftir Emily Brontë
— AFP

Upplýst hefur verið að Margot Robbie og Jacob Elordi muni fara með hlutverk Catherine Earnshaw og Heathcliff í kvikmyndaaðlögun Emerald Fennell á rómantísku skáldsögunni Wuthering Heights eftir Emily Brontë. Fennell mun sjálf skrifa handritið, leikstýra og framleiða. Þessu greinir Variety frá, en Fennell upplýsti um áform sín um mitt sumar. Myndin verður sú þriðja sem Fennell gerir í samstarfi við framleiðslufyrirtækið LuckyChap, en fyrri myndirnar tvær eru Saltburn (2023) og Promising Young Woman (2022), en fyrir þá mynd fékk Fennell Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda handritið. Ráðgert er að Wuthering Heights verði tekin upp í Bretlandi árið 2025.