Belgíska knattspyrnufélagið Kortrijk birti yfirlýsingu á heimasíðu sinni í gær vegna fregna þess efnis að Freyr Alexandersson þjálfari liðsins væri sterklega orðaður við Cardiff City. Miðillinn HLN gekk svo langt að segja Frey hafa logið til um…
Belgía Freyr Alexandersson þjálfar belgíska liðið Kortrijk áfram.
Belgía Freyr Alexandersson þjálfar belgíska liðið Kortrijk áfram. — Ljósmynd/Kortrijk

Belgíska knattspyrnufélagið Kortrijk birti yfirlýsingu á heimasíðu sinni í gær vegna fregna þess efnis að Freyr Alexandersson þjálfari liðsins væri sterklega orðaður við Cardiff City. Miðillinn HLN gekk svo langt að segja Frey hafa logið til um veikindi en hafa í stað þess flogið til Wales og rætt við forráðamenn Cardiff.

Þessu vísaði Freyr á bug á samfélagsmiðlinum X. Í yfirlýsingunni kemur svo fram að Freyr hafi ekki áhuga á að yfirgefa belgíska félagið.