Fjórir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram á föstudag í tengslum við innbrot í verslanir Elko í Skeifunni og Lindum aðfaranótt mánudags. Að sögn Heimis Ríkharðssonar, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, nemur verðmæti þýfisins tugum milljóna króna. Það er enn ófundið.
„Þetta er mikið magn sem þeir taka af tækjum, svo komast þeir í sjóðvél líka,“ segir Heimir. Hún var í versluninni í Lindum en Heimir vill að svo stöddu ekki greina frá upphæðinni sem var tekin þaðan.
Þrír karlmenn og ein kona eru í haldi vegna málsins. Þau eru öll af erlendu bergi brotin og eru ekki með íslenskan ríkisborgararétt.
Heimir segist ekki geta sagt til um hvort þjófnaðurinn tengist skipulagðri glæpastarfsemi. freyr@mbl.is