Körfuknattleiksdeild Hauka hefur ákveðið að segja samningi hins litháíska Arvydas Gydra upp, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann samdi við félagið. Karfan greindi frá í gær. Gydra, sem er 205 sentimetrar á hæð og 34 ára gamall, kom frá Flyers Wels…
Körfuknattleiksdeild Hauka hefur ákveðið að segja samningi hins litháíska Arvydas Gydra upp, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann samdi við félagið. Karfan greindi frá í gær.
Gydra, sem er 205 sentimetrar á hæð og 34 ára gamall, kom frá Flyers Wels í Austurríki um miðjan júlí og hefur æft og leikið með Haukum í undirbúningi liðsins fyrir komandi tímabil. Nú er hins vegar ljóst að Litháinn leikur ekki með liðinu á tímabilinu.