Dregið var í fyrstu umferð bikarkeppni karla í körfuknattleik í höfuðstöðvum KKÍ í Laugardal í gær. Valur heimsækir ÍR í úrvalsdeildarslag og bikarmeistarar Keflavíkur fara til Hveragerðis.
Alls eru 25 lið skráð til leiks en dregið var í níu viðureignir þar sem keppt verður um sæti í sextán liða úrslitum. Leikið verður 20.-21. október.
Haukar, Sindri, Þór frá Þorlákshöfn, Höttur, Stjarnan, KR og KV sitja hjá og eru komin áfram í sextán liða úrslit.
Liðin sem mætast í fyrstu umferð eru eftirfarandi:
Hamar – Keflavík
Þór Akureyri – Álftanes
ÍA – Tindastóll
Selfoss – Fjölnir
Laugdælir – Breiðablik
ÍR – Valur
Ármann – Njarðvík
Skallagrímur – Snæfell
KR b – Grindavík