Íslendingalið Kolstad vann sterkan sigur á RK Zagreb, 29:25, í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í gærkvöldi. Sigvaldi Björn Guðjónsson fór á kostum í liði Kolstad. Sigvaldi Björn gerði sér lítið fyrir og skoraði 11 mörk fyrir norsku meistarana og var þannig markahæstur í leiknum.
Benedikt Gunnar Óskarsson bætti við tveimur mörkum en Sveinn Jóhannsson komst ekki á blað. Kolstad er með tvö stig í riðlinum eftir þrjá leiki.
Annað Íslendingalið, Magdeburg, gerði jafntefli við Aalborg á útivelli, 33:33, þar sem Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon fóru fyrir gestunum frá Þýskalandi.
Gísli Þorgeir skoraði sjö mörk fyrir Magdeburg og var markahæstur í leiknum. Ómar Ingi var skammt undan með fimm
...