Caput-hópurinn flytur tvö verk úr smiðju tónskáldsins Johns Speights á tónleikum í Salnum í Kópavogi á sunnudag, 29. september, kl. 13.30. Á efnisskrá verða verkin Djákninn á Myrká (1998) og Klukkukvæði (1988) við ljóð Hannesar Péturssonar. Í hlutverkum sögumanns og einsöngvara eru Arnar Jónsson leikari og Hildigunnur Einarsdóttir messósópran. Á undan tónleikunum, sem eru hluti af klassískri tónleikaröð Salarins, Tíbrá, verður boðið upp á tónleikaspjall sem hefst klukkan 13.