Sesselja Inga Guðnadóttir fæddist 28. febrúar árið 1948. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 12. september 2024.

Foreldrar hennar voru Guðni Frímann Ingimundarson, f. 1. apríl 1934, d. 10. september 2004, og Kristín Sigurðardóttir, f. 16. febrúar 1917, d. 6. mars 2006. Sesselja Inga var þriðja elst af sex systkinum. Eftirlifandi eru Sigurður Guðnason og Sverrir Ómar Guðnason.

Sesselja Inga giftist eftirlifandi maka sínum, Markúsi Ragnari Þorvaldssyni bílasmið, þann 18. júní 1966. Saman eignuðust þau þrjú börn. Þau eru Kristín Sigurrós Markúsdóttir, f. 4. september 1965, d. 11. maí 2024, Þorvaldur Markússon, f. 2. nóvember 1968, Guðni Markússon, f. 12. júní 1973. Börn Kristínar eru Linda Ýr og Markús Vilberg. Maki Þorvaldar er Berglind Helga og börn þeirra eru Hrafnhildur Lind, Óliver Álfþór og Thelma

...