Steinþór Már Auðunsson, markvörður KA, var besti leikmaður 23. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu að mati Morgunblaðsins. Steinþór Már átti mjög góðan leik fyrir KA þegar liðið gerði jafntefli gegn HK, 3:3, í neðri hluta deildarinnar og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína i leiknum sem fram fór á Akureyri miðvikudaginn 25. september. 23. umferðin var leikin sunnudaginn 22. september, mánudaginn 23. september og kláraðist svo með þremur leikjum á miðvikudaginn.
Steinþór Már, sem er 34 ára gamall, hefur verið í fantaformi fyrir Akureyringa í síðustu leikjum en hann var einn besti leikmaður liðsins þegar KA varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögunni eftir sigur gegn Víkingi úr Reykjavík í úrslitaleik bikarkeppninnar á Laugardalsvelli laugardaginn 21. september.
Markvörðurinn á að baki áhugaverðan
...