Kristín Benediktsdóttir
Kristín Benediktsdóttir

Alþingi hefur kjörið Kristínu Benediktsdóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, sem nýjan umboðsmann Alþingis til næstu fjögurra ára. Kristín var kjörin með 38 atkvæðum þingmanna. Tveir þingmenn greiddu ekki atkvæði.

Fjórir einstaklingar gáfu kost á sér í embætti umboðsmanns Alþingis. Auk Kristínar voru það Anna Tryggvadóttir skrifstofustjóri, Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, og Reimar Pétursson lögmaður.

Forsætisnefnd Alþingis auglýsti í júlí að hún myndi fyrir lok septembermánaðar gera tillögu til Alþingis um einstakling til að gegna embætti umboðsmanns Alþingis.

Samkvæmt lögum um embættið kýs Alþingi umboðsmann til fjögurra ára í senn. Það er forsætisnefnd Alþingis sem gerir tillögu til þingsins um einstakling til að gegna embættinu. Á fundi forsætisnefndar í gærmorgun

...