Einar Kristján Sigurgeirsson fæddist í Reykjavík 28. september 1949. Hann lést 9. apríl 2024 í Taílandi.

Foreldrar hans voru hjónin Ólína Steindórsdóttir, f. 1928, d. 1983, og Sigurgeir Guðjónsson, f. 1925, d. 1962. Seinni eiginmaður Ólínu var Einar Pálsson, f. 1940, d. 2019.

Systkini Einars eru Erla Kristbjörg Sigurgeirsdóttir, f. 1952, Guðmundur Kristinn Sigurgeirsson, f. 1955, Gerður Engilrós Einarsdóttir, f. 1968, og Kristrún Einarsdóttir, f. 1969.

Einar kvæntist Stellu Stefaníu Kemp Hrafnkelsdóttur, f. 1955, hjúkrunarfræðingi. Foreldrar hennar voru hjónin Helga Lovísa Lúðvíksdóttir Kemp, f. 1925, d. 1990, og Hrafnkell Helgason, f. 1928, d. 2010.

Einar og Stella eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Jónas Geir, f. 1977, læknir, kvæntur

...