Keppnistímabilið í körfuboltanum hefst í dag með Meistarakeppni KKÍ sem er leikin í Keflavík að þessu sinni.
Keflavíkurkonur mæta Þór frá Akureyri í Meistarakeppni kvenna klukkan 16.30 og Keflavíkurkarlar mæta Valsmönnum klukkan 19.15.
Í gær voru birtar spár fyrir keppnistímabilið í körfuboltanum en Íslandsmótið hefst á þriðjudagskvöldið kemur.
Miðað við þær verður sannkallaður toppslagur þegar karlalið Keflavíkur og Vals mætast í kvöld. Tvær spár voru birtar á kynningarfundi deildarinnar í gær. Þar spá fjölmiðlar Keflvíkingum sigri í úrvalsdeild karla í vetur en fyrirliðar, þjálfarar og forráðamenn félaganna hallast að því að Valur hafi þar betur, eftir tvísýna baráttu við Keflavík.
Keflavíkurkonum
...