Jökull Helgi Sigurðsson
Jökull Helgi Sigurðsson

Jökull Helgi Sigurðsson opnar sýningu í Gallery Kontór, Hverfisgötu 16a, í dag 28. september kl. 15. Jökull Helgi er fæddur 1993 í París og hlaut myndlistarmenntun í Myndlistaskóla Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands. Bakgrunnur hans er óvanalegur, að því er segir í tilkynningu, auk Parísar var hann m.a. alinn upp í Taívan og Hong Kong. Þar segir að báðir foreldrar hans séu myndlistarmenn en hann hafi lengi verið tregur til að fylgja í fótspor þeirra.