Framari Róbert Hauksson leikur með Fram frá og með næstu leiktíð.
Framari Róbert Hauksson leikur með Fram frá og með næstu leiktíð. — Morgunblaðið/Óttar

Knattspyrnumaðurinn Róbert Hauksson er genginn til liðs við Fram frá Leikni úr Reykjavík. Róbert, sem er 22 ára gamall, er uppalinn hjá Stjörnunni í Garðabæ en hann skrifaði undir tveggja ára samning í Úlfarsárdalnum. Róbert hefur leikið með Leikni frá árinu 2022 og á að baki 25 leiki í efstu deild og þrjú mörk. Hann lék 15 leiki með Leikni í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim 5 mörk. Sóknarmaðurinn hefur einnig leikið með Þrótti úr Reykjavík.