Selfoss hafði betur gegn KFA, 3:1, í framlengdum úrslitaleik neðrideildarbikarsins í fótbolta á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Varð gott tímabil Selfyssinga því enn betra en Selfoss vann sannfærandi sigur í 2. deildinni og vann sér inn sæti í 1. deild.
Birkir Ingi Óskarsson kom KFA yfir á 54. mínútu og var staðan 1:0 fram að 75. mínútu er Sesar Örn Harðarson jafnaði. Urðu mörkin í venjulegum leiktíma ekki fleiri og því varð að framlengja.
Brynjar Bergsson kom Selfossi í 2:1 á 99. mínútu og Spánverjinn Gonzalo Zamorano gulltryggði sigurinn með þriðja markinu á 102. mínútu.
Keppnin var haldin í fyrsta skipti í fyrra og þá vann Víðir úr Garði.