FH náði tveggja stiga forskoti á toppi úrvalsdeildar karla í handbolta með sigri á Stjörnunni, 26:22, á útivelli í gærkvöldi. FH er með átta stig eftir fimm leiki. FH-ingar töpuðu óvænt fyrir HK í annarri umferð en hafa unnið þrjá leiki í röð síðan. Þá fór Fram upp að Gróttu og Haukum í öðru sæti með sigri á síðarnefnda liðinu á heimavelli, 37:34. Fram er með þrjá sigra í röð en Haukar tvö töp í röð. » 40