AKUREYRARKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Yngri barnakór kirkjunnar syngur. Króli og Birta mæta og flytja okkur tónlist úr Litlu hryllingsbúðinni. Umsjón sr. Hildur Eir og Sigrún Magna organisti
Áskirkja
Áskirkja — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

AKUREYRARKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Yngri barnakór kirkjunnar syngur. Króli og Birta mæta og flytja okkur tónlist úr Litlu hryllingsbúðinni. Umsjón sr. Hildur Eir og Sigrún Magna organisti.

ÁRBÆJARKIRKJA | Komdu og njóttu notalegrar samveru í Árbæjarkirkju í guðsþjónustu safnaðarins á sunnudagsmorgna. Kór Árbæjarkirkju mun syngja og leiða almennan safnaðarsögn undir stjórn og undirleik Krisztinu K. Szklenár. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudagaskólinn kl. 13 í umsjón Bjarma, Önnu Siggu og sr. Þórs. Komdu og nýttu tækifærið til að staldra við, lyfta huganum og hjarta í upphafi nýrrar viku.

ÁSKIRKJA | Messa kl. 13. Séra Ursula Árnadóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Hressing í Ási eftir messu.

...