Allt var sett á fulla ferð nú í vikunni og byrjað að þreskja korn á ökrunum miklu við Gunnarsholt á Rangárvöllum. Þarna eru undir alls 320 hektarar; ræktun sem Björgvin Þór Harðarson í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi stundar sem fóðuröflun fyrir svínabúið Grís og flesk
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Allt var sett á fulla ferð nú í vikunni og byrjað að þreskja korn á ökrunum miklu við Gunnarsholt á Rangárvöllum. Þarna eru undir alls 320 hektarar; ræktun sem Björgvin Þór Harðarson í Laxárdal í Skeiða- og Gnúpverjahreppi stundar sem fóðuröflun fyrir svínabúið Grís og flesk. Á stærstum hluta þessa lands er ræktað bygg, en einnig repja og hveiti þótt í minna mæli sé.
Stærstu kornakrar landsins
„Axið
...