40 ára Valur er Reykvíkingur, ólst upp í Laugardalnum en býr í Kópavogi. Hann er iðnaðarverkfræðingur frá HÍ og lauk síðan meistaragráðu frá Masdar Institute í Abu Dhabi. Valur er forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Landsvirkjun. Áhugamálin eru golf og fjölskyldan.


Fjölskylda Eiginkona Vals er Eva Ósk Eggertsdóttir, f. 1988, viðskiptafræðingur og starfar við reikningshald hjá Almenna lífeyrissjóðnum. Börn þeirra eru Björn Kári, f. 2015, ­Mardís Erla, f. 2017, og Matthildur Lóa, f. 2022. Foreldrar Vals eru hjónin Ægir Magnús­son, f. 1958, kennari í Hvaleyrar­skóla, og Anna Bragadóttir, f. 1961, forstöðumaður háskólagrunns hjá HR, búsett í Reykjavík.