Steinunn fæddist á Hrolllaugsstöðum í Norður-Þingeyjarsýslu 13. júní 1936. Hún lést á Hrafnistu, Sléttuvegi, 27. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Rósa Gunnlaugsdóttir og Jón Ólason sem bjuggu í Ártúni í sömu sveit. Steinunn var fjórða í aldursröð tíu alsystkina en auk þess átti hún tvö hálfsystkin, annað samfeðra, hitt sammæðra.

Steinunn gekk í barnaskóla á Akureyri og síðan gagnfræðaskóla, en þaðan lá leiðin í Húsmæðraskólann á Laugalandi.

Steinunn gekk í hjónaband með Jóni Víglundssyni árið 1958. Jón lést 31. ágúst 2020.

Börn Steinunnar og Jóns eru þrjú: 1) Víglundur Grétar, f. 1958. Hann er kvæntur Guðbjörgu Helgu Sigurðardóttur. Þau eiga tvö börn, en hann átti eitt fyrir. Barnabörn Víglunds eru fjögur. 2) Valbjörn Jón, f. 1960. Hann

...