Kvikmyndir
Jóna Gréta
Hilmarsdóttir
Slæmur snillingur segir frá afburðanemanda, Lynn Kang (Callina Liang), sem sér tækifæri í því að hjálpa auðugum skólasystkinum sínum, Grace (Taylor Hickson) og Pat (Samuel Braun), að svindla á prófum. Lynn er innflytjandi og býr ein ásamt föður sínum (Benedict Wong) sem rekur þvottahús. Hinir ríku samnemendur hennar vilja gera foreldrum sínum til geðs og komast inn í virtan háskóla og Lynn þarf á peningum að halda til að gera draum sinn um að fara í tónlistarnám í Juilliard að raunveruleika. Í hennar stöðu duga óaðfinnanlegir hæfileikar ekki. Lynn finnur ótrúlega leið til að svindla og græða á menntakerfinu og nær þannig að hefna sín á kerfinu sem mismunar henni og fleirum í hennar stöðu. Ef eitthvað fer úrskeiðis verða afleiðingarnar hins vegar mun
...