Vilhjálmur Ómar Sverrisson (Villi) fæddist 25. júlí 1977. Hann lést 20. júní 2024.

Útför Villa fór fram 16. júlí 2024.

Sæll, elsku kæri pabbi. Ég var ekki alveg tilbúinn að skrifa þennan texta fyrir blaðið þegar mamma og Ásta gerðu það, mér fannst það skrítið að vera að setja texta í blöðin en ég held að ég hafi enn þá verið smá pirraður og sár að þetta hafi verið endinn. Ég held að ég muni seint sætta mig við það að lifa í heimi þar sem faðir minn er ekki til staðar og muni ekki sjá mig afreka mikið í lífinu eins og að fá Bsc-gráðu í sálfræði sem þú trúðir alltaf á að ég myndi ná léttilega. Þú varst svo stoltur þegar þú fréttir að ég hefði komist inn í sálfræði í HR þar sem þig hafði alltaf langað að gera það en slepptir því vegna þess að námsráðgjafi hafi sagt þér að það væri ekki fyrir þig.

Ég

...