Ómar Hrafn Gíslason fæddist 3. janúar 1994. Hann lést 1. september 2024.

Útför fór fram 11. september 2024.

Elsku fallegi Ómar Hrafn.

Nú ertu búinn að kveðja okkur. Við erum svo þakklát fyrir hafa haft þig í lífi okkar. Þú varst hjartahlýr, duglegur og mesti húmoristi sem til var, hvar sem þú varst fékkstu alla til að hlæja. Ómar skilur eftir sig tvö börn, Ólíver Hrafn og Júlíu Rós. Hann sá ekki sólina fyrir þeim. Hann sá til þess að það var alltaf einhver „aksjón“ í gangi en þá eyddi hann dögunum með þeim á róló, í sundi eða einhvers konar útiveru. Á laugardögum eftir kvöldmat fór Ómar einnig með börnin í Hagkaup. Þá var keypt nammi og farið svo beint heim í kósíkvöld en kósíkvöld hjá Ómari voru algerlega heilög og hann var búinn að finna kvikmynd til að horfa á með börnunum nokkrum

...